Leið samkenndar og vakandi athygli til sáttar í eigin lífi
SALT er leið til sjálfsskoðunar, samkenndar og sáttar í eigin lífi. Leið vakandi athygli sem byggir á búddískri kennslu og iðkun, í daglegu tali kallað núvitund.
Salt stendur fyrir: SJÁ, ATHUGA, LEYFA og TREYSTA. SALT er leið sem gefur okkur tækifæri til að upplifa og tjá lífið í meiri skýrleika, gleði og mildi. Við sjáum það sem er, skoðum með opnum huga og erum tilbúin til að staldra við, sjá og snerta líf okkar djúplega. Leyfum því að vera eins og það er, lærum að treysta lífinu og bera djúpa umhyggju fyrir okkur sjálfum og öðru lífi. Lífið kann að lifa. Í þeirri sátt getum við treyst lífinu, orðið heil og óhrædd við að sættast við okkur sjálf - eins og við erum. Þá erum við komin á stefnumót við lífið. Ástvaldur Zenki býður upp á ráðgjöf fyrir einstaklinga, námskeið og fyrirlestra. |