ÁSTVALDUR ZENKI
  • Heim
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Ástvaldur Zenki
  • Hafðu samband
  • Podcast

Ráðgjöf

Leið samkenndar og vakandi athygli til sáttar í eigin lífi

Leið sem hjálpar okkur að sjá skýrt og verða meðvituð um hið ómeðvitaða. Þannig getum við tekist á við erfiðar tilfinningar og hugsanir sem valda okkur vanlíðan og koma í veg fyrir að við döfnum í lífi og starfi.

Það er mikill umbreytingarkraftur fólginn í því að sjá það sem er, skoða það með einlægum og opnum huga og sleppa því svo í mildi og kærleika.

​Markmiðið er vitundarvakning - að losna undan oki hugsana og tilfinninga og vera ekki lengur undir þeirra stjórn. Læra að treysta lífinu, sem kann að lifa og lifa heil og í sátt.

Sjö lyklar samkenndar

  1. Lífið kann að lifa - Treystu innsæinu, vertu skapandi. 
  2. Lífið er óútreiknanlegt - Vertu opin(n) og forvitin(n). 
  3. Allt er í heiminum hverfullt - Leitaðu skjóls í hverfuleikanum.
  4. Þessi stund á sér hvorki útskýringu né ástæðu - Lærðu að taka ábyrgð á þínum aðstæðum.
  5. Lífið er eins og það er akkúrat núna - Lærðu að sjá í gegn um þínar hugmyndir um lífið.
  6. Þú ert ekki það sem þú heldur að þú sért - Finndu hugrekkið til að sleppa tökunum og mæta sjálfum þér í mildi, skýrleika og húmor.
  7. Uppspretta lífsins er hreinn kærleikur - Afhjúpaðu kærleikann í lífinu.
​
​-Ástvaldur Zenki
Picture
Hafðu samband
  • Heim
  • Ráðgjöf
  • Námskeið
  • Ástvaldur Zenki
  • Hafðu samband
  • Podcast